Orðskýring
á ð é í ó ú ý þ æ ö
vitsmunavísindi hk. ft.
Fjölþætt þekkingarsvið sem hefur það markmið að kanna hæfileika hugans til þess að setja fram og reikna og hvernig þessum hæfileikum er komið fyrir í heilanum.
Í vitsmunavísindum er fengist við það hvernig unnið er úr táknum, og þau taka til jafnólíkra greina og sálarfræði, tölvufræði, málvísinda, mannfræði, heimspeki, uppeldisfræði, stærðfræði, verkfræði, lífeðlisfræði og taugavísinda.
Enska: cognitive science, cognitivism