Orðskýring

Á Ð É Í Ó Ú Ý Þ Æ Ö
á ð é í ó ú ý þ æ ö
 
* er algildistákn og táknar engan (0) eða fleiri stafi eða stafbil.
? er algildistákn og táknar nákvæmlega einn staf eða stafbil.
Ef * er í leitarstreng verða að vera minnst 2 aðrir stafir.
umfremd1 kv.

áreiðanleika2, viðhaldsþægni og tiltækileika2) Það að tiltækt er meira en þörf er á til þess að búnaður geri það sem til er ætlast eða að upplýsingar1 eru settar fram með meiri gögnum en nauðsynlegt er.

Umfremd er einkum beitt til þess að auka áreiðanleika eða tiltækileika.
Dæmi:
(1) Notkun búnaðar í tveimur eintökum. (2) Það að bæta við pörunarbitum.
umfremd2 kv.

upplýsingafræði) Munur R á ákvörðunarmældinni \( H_0 \) og óreiðunni H, eða á táknmáli stærðfræðinnar:
~\vspace*{-5mm} \[ R = H_0 - H. \]

Venjulega er unnt að setja skeyti1 fram með færri stöfum með því að nota viðeigandi kótunarreglur. Líta má á umfremdina sem mælikvarða þeirrar styttingar á meðallengd skeyta sem næst með viðeigandi kótun.
Dæmi:
Ef \( \{a,b,c\} \) er mengi þriggja atburða og líkindin á að þeir gerist eru \( p(a) \) = 0,5, \( p(b) \) = 0,25 og \( p(c) \) = 0,25 þá er umfremd þessa mengis:
R = 1,58 Sh -- 1,50 Sh = 0,08 Sh.