Orðskýring

Á Ð É Í Ó Ú Ý Þ Æ Ö
á ð é í ó ú ý þ æ ö
 
(* = hvað sem er, ? = stakur stafur) (Nánar)
umfremd1 kv.
áreiðanleika2, viðhaldsþægni og tiltækileika2) Það að tiltækt er meira en þörf er á til þess að búnaður geri það sem til er ætlast eða að upplýsingar1 eru settar fram með meiri gögnum en nauðsynlegt er.
Umfremd er einkum beitt til þess að auka áreiðanleika eða tiltækileika.
Dæmi: (1) Notkun búnaðar í tveimur eintökum. (2) Það að bæta við pörunarbitum.
umfremd2 kv.
upplýsingafræði) Munur R á ákvörðunarmældinni H0 og óreiðunni H, eða á táknmáli stærðfræðinnar:
R = H0 - H.
Venjulega er unnt að setja skeyti1 fram með færri stöfum með því að nota viðeigandi kótunarreglur. Líta má á umfremdina sem mælikvarða þeirrar styttingar á meðallengd skeyta sem næst með viðeigandi kótun.
Dæmi: Ef {a,b,c} er mengi þriggja atburða og líkindin á að þeir gerist eru p(a) = 0,5, p(b) = 0,25 og p(c) = 0,25 þá er umfremd þessa mengis:
R = 1,58 Sh -- 1,50 Sh = 0,08 Sh.