Orðskýring
á ð é í ó ú ý þ æ ö (* = hvað sem er, ? = stakur stafur) (Nánar)
tölva af annarri kynslóð
Tölva þar sem smárar komu í stað rafeindalampa sem voru í tölvum af fyrstu kynslóð svo að þær minnkuðu, þurftu minna rafmagn en urðu afkastameiri og áreiðanlegri. Byrjað var að nota seguldiska sem ytri geymslu.
Tímabil tölva af annarri kynslóð er talið hefjast rétt fyrir 1960. Dæmi um tölvur af annarri kynslóð eru Atlas, IBM 1401 og IBM 1620.
Enska: second-generation computer