Orðskýring
á ð é í ó ú ý þ æ ö (* = hvað sem er, ? = stakur stafur) (Nánar)
breyta1 kv.
Heiti sem stendur fyrir gildi eða fyrirbæri sem er óákveðið innan tiltekinna marka uns það er ákveðið í tilteknu viðfangsefni.
Enska: variable1
breyta2 kv.
(í forritun) Fjórþætt fyrirbæri sem er annaðhvort skilgreint sérstaklega eða með ífólginni skilgreiningu og er gert úr nefni, eigindum1, einu eða fleiri vistföngum og gagnagildum þar sem vensl milli vistfanga og gagnagilda geta verið breytileg.
Í sumum forritunarmálum geta vistföng verið breytileg og þess vegna einnig gagnagildi. Í öðrum forritunarmálum breytast vistföng ekki en gagnagildi breytast meðan á inningu stendur.
Enska: variable2