Orðskýring
á ð é í ó ú ý þ æ ö (* = hvað sem er, ? = stakur stafur) (Nánar)
brautartími1 kk.
Brautartíminn er sá tími sem það tekur merki að fara um flutningsmiðil hringnetsins, þar með talda notendastrengi og allar gagnastöðvar í netinu.
Enska: ring latency
brautartími2 kk.
Tvöfaldur sá tími sem það tekur bita að fara á milli þeirra tveggja gagnastöðva í brautarneti sem lengst er á milli.
Í neti þar sem notuð er burðarbylgjuskynjun verður hver rammi1 að vera nógu langur til að sendistöðin geti greint árekstur1 eða árekstrarmerki á meðan verið er að senda rammann. Brautartíminn ákvarðar því minnstu stærð ramma.
Enska: round-trip propagation time