Orðskýring

Á Ð É Í Ó Ú Ý Þ Æ Ö
á ð é í ó ú ý þ æ ö
 
(* = hvað sem er, ? = stakur stafur) (Nánar)
bot hk.
Mælieining fyrir mótunarhraða, jöfn fjölda merkjastaka á sekúndu þar sem öll slík stök eru jafnlöng og hvert stak stendur fyrir einn eða fleiri bita.
Fyrir sum mótöld sem starfa við hraða sem er 1200 bitar/s eða meiri er mótunarhraðinn, gefinn í botum, venjulega minni en bitahraðinn af því að fleiri en einn biti flytjast með hverju merkjastaki. "Bot" er lagað eftir enska orðinu "baud" sem dregið er af nafni franska uppfinningamannsins Baudot.
Enska: baud
bót kv.
Bútur af kóta2 sem er settur í viðfangseiningu eða hleðslueiningu án þess að smala eða vistþýða frumforritið að nýju.
Bót er ætluð sem viðgerð til bráðabirgða.
Enska: patch1