Orðskýring

Á Ð É Í Ó Ú Ý Þ Æ Ö
á ð é í ó ú ý þ æ ö
 
(* = hvað sem er, ? = stakur stafur) (Nánar)
blendingsmál hk.
Sambland af máleiningum forritunarmáls og náttúrlegs tungumáls, sem tölva þarf ekki að geta unnið úr en er ætlað til þess að auðvelda mönnum að skilja hönnun forrits.
Setningar á blendingsmáli líkjast oft setningum á náttúrlegu tungumáli.
Dæmi:
EF gögnin berast hraðar en búist var við
   ÞÁ skal sleppa þriðja hverju ílagi
   ANNARS vinna úr öllum gögnum sem borist hafa.
LOKEF.
Enska: pseudocode