Orðskýring

Á Ð É Í Ó Ú Ý Þ Æ Ö
á ð é í ó ú ý þ æ ö
 
(* = hvað sem er, ? = stakur stafur) (Nánar)
bálksetning kv.
Afmörkuð runa setninga1 sem líta má á sem sérstaka málskipanareiningu og getur haft nefni.
Samheiti: blokkarsetning
Bálksetning er grunnþáttur í málskipan bálkskipaðra mála.
Í sumum forritunarmálum, t.d. C++, er "bálkur" samheiti fyrir fjölsetningu. Í öðrum forritunarmálum, t.d. Ada, hefur bálksetning mjög sérstaka merkingu og getur þá náð yfir skilgreiningar og frábrigðissýslara.
Það hvernig bálksetningum er fyrir komið í forritunarmálum hefur áhrif á gildissvið1 og æviskeið hluta2 sem eru skilgreindir sem hluti af bálksetningu.
Dæmi: Líta má á Pascal-forrit sem tiltekinn haus og eftirfarandi bálksetningu. Stefjur í Pascal eru skilgreindar á svipaðan hátt.