Orðskýring
á ð é í ó ú ý þ æ ö (* = hvað sem er, ? = stakur stafur) (Nánar)
klasi1 kk.
Tiltekinn hluti seguldisks eða disklings1, skilgreindur til hagræðis í vinnslu.
Seguldiskum og disklingum er skipt í ákveðinn fjölda klasa. Hver klasi getur t.d. náð yfir 2048 bæti.
Enska: cluster1
klasi2 kk.
Nokkrar útstöðvar og önnur tæki sem starfa sem ein heild í fjölnotendakerfi.
Enska: cluster2
klasi3 kk.
(í dreifvinnslu) Samsafn búnaðareininga af sömu gerð sem gegna hlutverki sameiginlega, annaðhvort í samstarfi eða undir sameiginlegri stjórn.
Enska: cluster3
klasi4 kk.
(í forritunarmálum) Sniðmát1 fyrir hluti2 þar sem skilgreind er formgerð og mengi aðgerða4 fyrir tilvik2 slíkra hluta.
Dæmi: Stofnræn undirforrit í Ada og stofnrænir pakkar eru klasar af því að þeir hafa sniðmát fyrir eingildingu á söfnum undirforrita1 og pakka2.
Enska: class