Orðskýring

Á Ð É Í Ó Ú Ý Þ Æ Ö
á ð é í ó ú ý þ æ ö
 
(* = hvað sem er, ? = stakur stafur) (Nánar)
jafna1 so.
ritvinnslu) Stilla texta lárétt þannig að fyrsti og síðasti stafur í hverri línu1 séu stilltir við viðeigandi spássíur eða stilla texta lóðrétt þannig að fyrsta og síðasta lína textans séu stilltar við samsvarandi spássíur þeirra.
Síðasta lína efnisgreinar er sjaldan jöfnuð.
Í ritunarkerfi þar sem línur eru ritaðar lóðrétt (t.d. í japönsku) er jöfnunin lóðrétt.
Enska: justify2
jafna2 so.
Beita samtímis tilteknum umbreytingarreglum á tvö eða fleiri gildi þannig að útkomurnar verði jafnar.
Enska: unify
jafna3 so.
Snyrta og breyta tölutákni sem haldið er eftir þannig að 1 er lagður við gildislægsta tölustafinn og geymt3, ef nauðsynlegt er, þá og því aðeins að gildishæsti tölustafurinn af þeim sem sleppt var sé jafn eða stærri helmingnum af grunntölu sætis2 síns.
Sjá einnig víxljafna.
Dæmi: Tölutáknin 12,6375 og 15,0625, jöfnuð í þrjú tugabrotssæti, verða 12,638 og 15,063.
Enska: round off1