Þorsteinn Sæmundsson (f. 1935) er stjörnufræðingur með B.Sc. Honours-próf frá háskólanum í St. Andrews 1958 og doktorspróf frá Lundúnaháskóla 1962. Vann við segulmælingar og norðurljósarannsóknir hjá Háskóla Íslands frá 1963 til starfsloka 2005, lengst af sem deildarstjóri háloftadeildar Raunvísindastofnunar Háskólans. Hefur annast útreikning og útgáfu Almanaks Háskólans frá 1963. Ritstjóri Almanaks Þjóðvinafélagsins 1967–1978. Í stjórn Fulbright-stofnunar 1971–1983 og 1985–1987, tvisvar sem formaður. Beitti sér fyrir aðild Íslendinga að Norræna stjörnusjónaukanum og átti sæti í stjórn hans 1997–2005. Formaður orðanefndar Stjarnvísindafélags Íslands.