| Sigrún Helgadóttir (f. 1945) er tölfræðingur með M.Sc.-próf frá háskólanum í Liverpool 1976. Starfaði við gagnavinnslu og tölfræðiútreikninga við Reiknistofnun Háskólans 1974–1978, Rannsóknastofnun landbúnaðarins 1976–1984 og Hagstofu Íslands 1987–2000. Ráðgjafi um tölvuorðaforða í Ensk-íslenskri orðabók Arnar og Örlygs. Ritstjóri fyrstu og annarrar útgáfu Tölvuorðasafns. Í stjórn Íslenskrar málnefndar 1989–2001. Hefur ritað greinar um málrækt, sérstaklega orðaforða tölvutækninnar í íslensk og erlend rit. Hefur starfað að tungutæknirannsóknum við Orðabók Háskólans frá 2002. | ![]() |
