Örn S. Kaldalóns (f. 1945) er kerfisfræðingur frá IBM Education Center í London 1974. Sérfræðingur IBM á Íslandi í System/3x‑tölvum 1974–1982. Stundaði kerfisprófanir hjá IBM í Kanada 1982–1983. Var yfirmaður Þýðingastöðvar Orðabókar Háskólans og IBM og sá um íslenskar málkröfur fyrir IBM á Íslandi 1984–1992. Starfaði hjá Nýherja 1992–2004, m.a. sem stjórnandi miðlægs tölvukerfis, sérfræðingur í EDI og Talsjá og fulltrúi gagnvart IBM vegna íslenskra þýðinga og málkrafna. Í stjórn Fagráðs í upplýsingatækni frá 1994 og fulltrúi þess í stjórn Icepro frá 1998.