| Baldur Jónsson (f. 1930) er málfræðingur með meistarapróf (mag. art.) í íslenskum fræðum frá Háskóla Íslands 1958. Fulbright‑styrkþegi við nám í germönskum málvísindum í University of Michigan 1959. Lektor í íslensku í háskólunum í Gautaborg og Lundi 1960–1963. Sérfræðingur á Orðabók Háskólans 1963–1965. Lektor og síðar dósent í íslenskri málfræði í Háskóla Íslands 1965–1985. Forstöðumaður Íslenskrar málstöðvar og prófessor 1985–1999. Stjórnaði tilraunaverkefni í máltölvun (tungutækni) 1973–1980. Formaður Íslenskrar málnefndar 1978–1988. Beitti sér fyrir stofnun Íslenskrar málstöðvar 1985 og Málræktarsjóðs 1991. Höfundur og ritstjóri margra rita um íslenskt mál og málfræði. | ![]() |
